|
Flutti af landibrott
Fyrir 734529 dögum
|
23.05.2007 20:51:56 / Hekla
jæja.... bara láta vita ég er á lífi. 
En það er bara klikkað búið að vera að gera og ofaná allt saman
þá kom Unnur hingað út i inntökupróf og kærastinn kom með henni og
eru þau búin að vera herna síðan á föstudag og voru að fara i dag.
Það var voða gaman að fá þau í heimsókn og skelltum við okkur á
djammið um helgina. 
Annars gengur svosem ágætlega að hanna þessa blessuðu
stúdentagarða, svoldið hægt... en samt fínt bara! Er nokkuð ánægð
með loka hugmyndina mína! Vonandi bara að ég geti komið
henni vel frá mer! En það er einmitt næsta verkefni... að koma
henni i fullum málum frá mér og byggja model! húff húff...
stress!!! Þetta þýðir að ég er flutt upp í skóla næstu vikurnar!
En ég verð að minnstakosti til 11 júní að drukna í námi!
En annars... já... þá eru þessir stúdentagarðar ekki eina sem ég
er að stressast yfir þessa dagana heldur líka það að ég er að fara
flytja eftir innanvið mánuð og ég er ekki komin með neinn stað til
að flytja á!!! hjálp!!! núna verða allir að hugsa góðar hugsanir og
krossleggja fingur fyrir mig... í von um að ég fái íbúð áður
en ég þarf að vera flutt út héðan!!
Svo núna er það áframhaldandi verkefna vinna og húsnæðisleit
þess á milli... 
»
13.05.2007 15:28:39 / Hekla
Ætla ekki að koma með neina rosa færslu... er bara að
drukna í lærdómi en VARÐ að setja inn smá sem ég stal af
þessari síðu: http://fiskholl.blog.is/blog/fiskholl/entry/208855/
Óréttlátt úthlutunarkerfi - misvægi
atkvæða
Það þarf að endurhanna úthlutunarkerfið.
Fiskveiðstjórnunarkerfið er óréttlátt en úthlutun þingsæta er
jafnvel óréttátara.
Kíkjum á atkvæði bakvið hvern þingmann.
xF = 3.308 atkv. bakvið hvern þingmann
xB = 3.050
xV = 2.904
xS = 2.707
xD = 2.670
xI með 5.953 atkv. og engan mann.
Hér er vitlaust gefið. Arfavitlaus kjördæmakerfi.
Stjórnin með: 88.098
Andstaðan með: 88.111
Andstaða + xI: 94.064
Þetta minnir á úrslitin Gore gegn Bush í forsetakosningum í USA.
Erum við á sama plani
jamm og já...svona er það...
Ég á nefninlega svoldið erfitt með að halda einbeitingunni eftir
þessi úrslit úr kosningunum... og þetta er bara til að undirstrika
hversu fáranlegt þetta allt saman nú er!!
»
13.04.2007 21:20:22 / Hekla
húff...
hvað haldið þið... fólk er farið að koma til að skoða íbúðina
mina!!!! og eg ekki komin með aðra íbúð til að flytja í.....
hjálp!!! eg fekk óvænt bank á dyrnar i blíðunni i dag... sat i
minum mestu makindum úti i svalardyrum að sóla mig og
tölvunördast...þá kemur bara ein með fjölskylduna með og vill fá að
skoða íbúðina! eg hafði ekki hugmynd um að það væri buið að láta
fólk vita eg væri að fara flytja!!! hjálp! og ju þeim leist voða
vel á þetta og sonurinn flytur inn í íbúðina mina! sjæsen! Mér
rann kalt blóð milli skinns og hörunds þegar eg áttaði
mig á þvi hvað væri stutt i að eg flyt út! húff... eg fékk svo
mikið sjokk að eg for að endurgera umsóknina mina um íbúðir og
bætti við nokkrum fleiri íbúðum og svo for eg að sækja um herbergi
lika... semsagt með sameiginlegt eldhus og bað með öðrum !!!
þa er eg orðin stressuð þegar eg er farin að gera það! OMG! ég verð
á götunni 1.júlí! 
en ja... yfir i allt annað...meðan chill pillan fer að virka
þá er bekkurinn að fara upp í sveit heim til einnar á morgun og
ætlum við að borða saman og hafa brennu/bál og svo gistum við
þar... enginn veit hvar enn... þvi herna á folk almennt ekki tjald!
svo ja það er eitt 6 eða 10 manna tjald til og ja...við verðum
svoldið fleiri! annars finnst þeim ekki mikið mál að sofa bara
undir berum himni!!! haha jamm og já!
annars.... her er bara sól og blíða búið að vera síðustu daga og
get eg sagt frá þvi að eg bara held eg se komin með lit eftir
daginn! enda ekki skrítið kannski, eftir að hafa verið úti i
allan dag og gærdag á grunni að teikna og punkta niður! gaman að
þvi... ekki jafn gaman samt að eg er á fullu i ritgerðarvinnunni
það finnst mer ekki gaman þegar eg gæti setið úti i góða veðrinu að
þurfa vera inni og læra! en líta a björtu hliðarnar eg fekk þó að
vera eitthvað úti í sólinni 
ps/ný skoðanakönnun...
»
30.03.2007 15:40:07 / Hekla
Barcelona er bara aedi, erum buin ad vera a fullu sidan komum og
verdum thad sem eftir er ferdarinnar held eg bara. loksins i
dag fengum vid gott vedur, sol buin ad vera sma oheppin,
fengum svaka rigningu i fyrradag, og venjulega rignir ekki nema 3
daga i mars manudi herna, og vid erum buin ad na i einn af theim
threm dogum.
en ja... eg er mikid mikid threytt nuna, aetla leggja mig medan
herbergid er ekki fullt af folki, en vid erum 10 saman i herbergi
upp a 10 fm ca og ja... triggjahaedakojur..... tid getid ekki
ymindad ykkur hvad vid erum ordin nain! haha 
»
08.03.2007 14:17:37 / Hekla
ohh ... alltaf jafn leiðinlegt þegar færslan hjá manni
hverfur... 
en það sem er búið að gerast herna:
allur snjór farinn
búin að skila kajakhúsinu sem við vorum að hanna
kritik gekk vel 
ball um daginn i skólanum... svaka fjör, en samt stutt stoppið
þar, þar sem ég var ekki búin að byggja módelið af
kajakhúsinu
Við Sandra skeltum okkur í verslunarleiðangur á námslánunum til
að halda upp á að vera búnar með verkefnið og að hafa fengið góða
kritik! áttum það skilið eftir allt brjálæðið sem er búið að vera
undanfarnar vikur!
ég er flutt inn í íbúðina mina í þrjá daga eða svo.... vonandi
meira samt. en eg er búin að búa upp í skóla síðustu vikur! mikil
uppsöfnuð þreyta og líkaminn mótmælir með kvefi!
framundan er ritgerðarvinna
og svo Barcelona! 
»
22.02.2007 11:43:50 / Hekla
jæja.... þetta er ekki alvöru færsla...sorry!
ætlaði bara segja það eru komnar inn fullt af myndum á
myndasíðuna!
og kemur bráðum blogg þar lika... kannski bara i dag...
annars allt á kafi i snjó her og eg bara komst ekki i skólann út af
njó svo það er nú ástæðan fyrir öllum myndunum gafst smá tími í
svoleiðis vesen... 
»
28.01.2007 14:21:39 / Hekla
Ísland bara komið áfram í 8. liða úrslit! ekkert smá spennandi allt
saman. Þeir eru svo að fara keppa við þýskaland eftir 10 mín,
vonandi að þeir vinni þá! það væri bara snilld, þá keppa þeir líka
ekki við jafn sterkt lið í 8 liða úrslitum! já maður fylgist sko
með þessu! enda er ég bara búin að vera á íslandi núna ansi
lengi... miðað við eins og um jólin...en það var ansi stutt stoppið
þá!! En ég skrapp á klakann í ritgerðarvinnu! búin að vera upp á
þjóðarbókhlöðu nánast á hverjum degi síðan! hefur bara því miður
ekki gengið vel að fá heimildir hér á klakanum, eitthvað lítið sem
skrifað er um arkitektur á landinu! samt engin smá uppbygging sem
hefur verið hér á síðustu árum og öld! hefur bara held ég hvergi i
heiminum verið svona miklar breytingar á íbúðarhúsum á síðustu öld
eins og á íslandi! vorum náttúrulega í moldarkofum í byrjun
aldar.... þykjumst núna vera fremst i húsnæðistmálum! hehe
en ja... þannig eg hef litlar sem engar heimildir fengið og er því
ekkert komin langt með þessa ritgerð mína. Bjargar þessu viðtal sem
eg tók við Ólaf Sigurðsson arkitekt, en eg held að fáir hafi
munnlegar heimildir í sínum ritgerðum! sem er bara gott vona eg

annars er ég bara búin að hafa það gott á íslandi síðustu daga! En
það var þetta líka frábæra veður þegar við Sandra lentum að við
bara gátum ekki annað en brosað upp að eyrum að vera komnar á
klakann! snjór yfir öllu og yndislegt bara! sáum yfir allt i
vélinni frá Hornafirði og þar til við lentum! Ég byrjaði á að reyna
slaka aðeins á eftir að hafa vakað i of marga daga úti fyrir skilin
á portfolio og svo viðtalið. Ég fór í bústaðinn strax og ég kom á
klakann og auðvitað heitapottinn. Það var ekkert smá stjörnubjart
og flott að liggja í pottinum.
Sóley og Einar buðu í matarboð á laugardaginn fyrir rúmri viku, og
komu Erla og Haffi þangað líka svo við náðum aðeins að hittast og
spjalla. Fengum þvílíkt góðan lasagna rett!! og svo var Sóley svo
myndarleg að baka köku meðan við vorum hjá þeim svo við fengum
franska súkkulaðiköku beint úr ofninum í eftirrétt! namm namm!!! og
takk fyrir mig 
svo er ég búin að vera svoldið dugleg á kaffihúsunum að hitta fólk
enda hitti ég frekar fáa um jólin þar sem það voru bara jólaboð sem
maður náði að afreka þá!
svo var matarboð á föstudaginn, og auðvitað kíkti maður á djamm í
bænum eftir það! Við Berglind skelltum okkur saman í bæinn og
entumst frekar lengi! ég hef allavega ekki verið svona lengi i
bænum bara í nokkur ár held ég! hehe
Í gær var svo þorrablót sem maður fór í og var nóg af harðfisk
borðaður þar!
nú er bara lærdómur framundan.....og eins gott að spíta í lófana og
skrifa ritgerð!! en það verður ekki fyrr en eftir leikinn á eftir
sem það verður gert!!! og hann er að byrja núna.... svo ég segi
bara áfram ísland!
»
02.01.2007 21:02:33 / Hekla
jæja þá er bara komið árið 2007 þó að einhverjir frakkar hafi
farið að mótmæla nýju ári! vittleysingar og þegar þeir sáu að það
gekk ekki að mótmæla árinu 2007 þá byrjuðu þeir bara að mótmæla
2008! stór skrítið lið!
en ja.... ég er semsagt komin aftur út! og var bara gott að
komast heim. það var samt lika voða gott að stoppa aðeins á
klakanum! hitta eitthvað af fólki og svona! hitti samt ekki
alla.... það verður bara bíða betri tíma!
skólinn byrjaði svo i dag... og nýtt verkefni komið í gang...
verður núna nóg að gera þar til 15. janúar! en þessu verkefni á að
skila 12. janúar og svo á að skila öllu sem höfum gert á önninni
þann 15. janúar og fyrir þann tíma er eg að fá tvær
heimsóknir! húff húff! nóg að gera! ég var nú samt voða dugleg í
desember áður en Vigdís kom, en það verður samt nóg að gera þrátt
fyrir þann dugnað annars er eg búin að setja eitthvað af myndum
inn frá afmælispartyinu, jólamatnum hjá húsinu og svo skólanum og
80´s partyi og svo eru fleiri myndir væntanlegar á næstunni 
»
25.12.2006 17:38:26 / Hekla
Bara skella inn jólakveðju á liðið!! vonandi hafið þið það sem
allra best yfir hátíðirnar!
Jólakveðja...
»
20.12.2006 13:16:09 / Hekla
jæja....kominn tími a færslu! sit i skólanum ad býda eftir ad
hópurinn minn nenni ad gera eitthvad en tau eru voda róleg í
tidinni nuna einmitt tegar eg ma EKKI vera ad thvi ad hanga! ohh
smá pirrud! en eg for bara nota timann og blogga....tar sem eg fekk
loksins komment a færslu! folks tid erud ekki ad standa ykkur i
thessu! eg hætti ad blogga ef fæ ekki komment takk!
Annars er sko bara buid ad vera nog ad gera, Vigdis kom i
sidustu viku og er enn herna....erum bunar ad vera a fullu i
budarrápi og thad vantar samt enn nokkrar jolagjafir! smá
óthægilegt tar sem eg hef ALDREI verid svona sein med
jolagjafainnkaupin! meira segja sumt ordid uppselt sem er buin ad
plana kaupa mer finnst tad ekki snidugt sko!
en ja svo verd eg ad fara nuna ætladi ad skrifa sma meira...en
skolinn..... later
»
04.12.2006 12:59:40 / Hekla
jæja....netið komið í lag heima! já eg fór og splæsti mer í
ráder....húff hann var dýr! núðlur fram að jólum hehe
Svaka dugnaður loksins að eg kom mer aftur í gírinn eftir alla
þreytuna sem fylgdi þessu mikla vinnálagi í skólanum, en eg setti
einmitt upp jólaseríur í gluggana mína á laugardaginn, og komst eg
alveg i svoldinn jólafíling þegar eg gerði það! bjó líka til
aðventukrans einhvern rosa auðveldan haha. kveykti svo auðvitað á
einu kerti i gær! hlustaði samt ekkert á jólalög nema rétt á meðan
ég var að þessu öllu saman, þar sem ég er svo búin að vera læra
fyrir utan það að vera að skreyta! 
En það styttist svo bara í jólafríið... og komu Vigdísar...komin
smá spenningur í mann, verð að viður kenna það! 
»
29.11.2006 19:09:58 / Hekla
Jæja.....Loksins! ég er komin heim
og kl er 18:30 núna! Eg hef bara ekki komið svona snemma heim
síðan bara ég veit ekki hvenær, allavega í tvær vikur! Og eg
fekk mesta svafn sem eg hef fengið í þó nokkurn tíma síðustu
nótt! Það var alveg um 5 og hálfur tími! Ja folks, eg er
örugglega búin að setja met i svefnleysi og vinnu á undanförnum
dögum (vikum) en það voru einmitt stór skil í gær og dag og
reyndar alla vikuna...en mest i gær, svo ja það er búið að vera
nóg að gera! Svo var kritik i dag! Húffhúff! Smá stress þar, en
þetta var nefninlega fyrsta alvöru kritikin okkar, við semsagt
vorum ekki í hópum i þetta skipti heldur eitt og eitt og ég
þurfti að halda ræðu i amk 10 mín og standa þarna uppi i 30 min
i kritik! Svakalegt! Fengum meira að segja utanaðkomandi aðila
til að kritika okkur, ásamt leiðbeinendunum okkar! Mín kritik
var semsagt i dag og gekk bara vel, smá stressuð í byrjun, og
mundi ekki neitt hvað eg ætlaði að segja, þar sem það voru allt
of margir að fylgjast með og hlusta! En eg er búin og fekk
bara fullt af góðum dómum og abendingar og svona, en þetta fer
að koma, nuna er maður að skilja þetta betur! 
Annars er lítið búið að gerast
undanfarið þar sem eg er bara búin að vera í skólanum að læra! Fór
samt i jólamat á laugardaginn hjá húsinu! Var nefninlega búin að
skrá mig á það fyrir löngu og búin að borga og allt, svo eg varð að
taka mer pásu frá lærdómi og mæta! Það var bara svaka stemning og
spes, svoldið öðruvísi jólamatur en maður er vanur
hehe
Myndir koma inn seinna frá því og
afmælinu og öllu...þar sem netið er ENN bilað hérna heima!
ARG....er semsagt að skrifa þessa færslu i word!
Ég er núna á leið á fund með húsinu
fjör....eg missti af síðasta, svo eg verð vist að reyna mæta i
þetta skiptið þó mig langi mest að sofa! Svo er eg á leið á
kaffihús eftir fundinn....þar sem það er búið að vera plan i nokkuð
langan tíma! Má ekkert vera að því að sofa....sef bara þegar ég er
dauð! Njóta þess að vera busy núna! hehe
Svo styttist bara í jólin! Bara
nokkrir dagar í þetta allt saman! Vigdís mín kemur eftir bara rétt
rúmar tvær vikur! Svaka spennandi! Hlakka rosa til að fá hana. Ég
ætla einmitt að vera dugleg hérna heima um helgina, þar sem það
verður enginn lærdómurinn fyrr en á mánudag, þá er fyrirlestur um
næsta verkefni, þannig eg hef bara allan tíman í heiminum um
helgina til að dunda mér eitthvað! Planið er semsagt að setja upp
jólaskraut! Og gera smá kosý herna! Ekki það að það sé ekki kósý
núna, en það verður bara meira kósý þegar jólaljósin verða komin í
gluggana og svona ég er meira að segja að taka forskot á sæluna
núna, þar sem eg er komin með ógeð á öllum lögunum mínum og er því
að hlusta á jólalög núna!
En þá er fundurinn að byrja eftir 4
min....svo það er best að koma sér.....
Ps/ fekk leyfi til að hafa langa
færslu því hef ekki bloggað svo lengi híhí
»
20.11.2006 17:25:09 / Hekla
ja, netid er bilad heima, thess vegna eru ekki komnar inn
myndir fra afmælinu minu!
og eg er ekki alveg ad tyma kaupa mer rader til ad geta notad
netid, thar sem hann kostar ekkert sma mikid herna! thannig
skolanetid verdur ad duga i bili! og ekkert msn, nema sma a daginn!
sem er reyndar ágætt, enda litill timi thar sem mikill er
lærdomurinn til ad vera spjalla eitthvad! get reyndar keypt rader,
profad hann i 30 daga og skilad honum svo og fengid peninginn til
baka, er ad spa ad gera thad kannski fram ad jolum, sja svo til
hvad eg geri eftir thad, og hvort hitt se komid i lag! snidugt ha?
mer finnst thad allavega! pæling sko!
annars....er ad farast ur hungri...svo ætla fa mer kvøldmat og
fara svo ad gera eitthvad herna i skolanum!
»
10.11.2006 10:54:56 / Hekla
jæja, kominn timi a færslu! sit i skolanum i tolvunum thar, svo
thad verda ekki islenskir stafir i thessari færslu!
Eg mætti i morgun til ad hitta leshopinn minn, var semsagt ad
lesa i allt gærkvold og nott til ad geta verid med i hvad vid
hofdum verid ad lesa og glosad og svona! nema hvad, eg for semsagt
seint ad sofa thvi eg vard ad lesa thetta allt saman og svaf thvi
adeins yfir mig i morgun, mætti svo 15 of seint, let thau samt
alveg vita, nema hvad ad tegar eg kom, buin ad hjola a 100 alla
leidina og svo hlaupa upp troppur a 5 hæd, opna svo hurdina tha
standa thau med koku og syngja afmælissonginn minn!!! hehe eg bjost
svo innilega ekki vid thessu! en ædi ... theim fannst thad ekki
hægt ad thad hafdi enginn sungid fyrir mig og bordad koku med mer
svo thau keyptu thessa svaka tertu hja bakaranum svo
vid byrjudum leshopstimann okkar a ad fa okkur sukkuladi,
marsipans, hnetu koku og te! hehe maginn minn tholdi ekert voda vel
allt thetta sukkuladi i morgunmat og var alltaf ad trufla okkur vid
lærdominn! mikid gert grin af thvi!
jamm og ja, gaman ad thessu! 
annars.... tha var farid ut a lifid sidustu helgi...enda skylda
thar sem jolabjorinn kom ut tha!
eg er buin ad setja myndir fra thvi a siduna!
ætla dryfa mig i hadegismat nuna! 
»
31.10.2006 15:30:57 / Hekla
jæja....smá færsla á þessa síðu....punkta færsla! því byst við
að flestir hafi lesið eitthvað af þessu á hinni síðunni!
Fimmtudagur 26.okt: Valný, Hanna Lóa og Björk kíktu i mat! svaka
stemmari og maturinn heppnaðist bara fínt! Sandra og Maddý úr
skólanum kíktu svo aðeins, var mikið kjaftað!
Föstudagur 27.okt: INTROFEST, fest, FEST í húsinu, eða réttara
sagt fyrir fólkið í húsinu, á bar hérna rétt hjá! þetta var til að
við myndum nú kynnast nágranna okkar, og var ansi skrautlegt og
skemmtilegt!
Laugardagur....lítið gert hmmm! 
Sunnudagur....vaknaði fersk, eldsnemma og fór að taka til og
þryfa og svo auðvitað setja inn myndir frá fim og fös. lærði það
sem eftir var af deginum og klukkan breyttist....bara eins tíma
munur á okkur núna! þess vegna gat eg líka verið duglegri
en annars þar sem eg græddi heilan tíma til að læra
Mánudagur 30.okt: mætti i skólann...í fjarvídd...sem eg þurfti
sko ekki á að halda að mæta! en ja...mætti engu af síður, bara
gerði EKKERT! kom samt ekki heim fyrr en um kvöldmatarleitið!
skrapp á leiðinni heim og ætlaði að kaupa skissubók, sem var ekki
til, og skrapp líka i musikhusið að taka myndir! æddi þar inn
rennandiblaut og með skólatöskuna á baknu, og þá var bara fullt af
liði að fara í einhvern rosa fínan mat, og svona 3000
rauðvinsflöskur sem var buið að opna og raða a barinn....ég bara VÁ
hvað þeir búast við mikið af fólki og mikilli drykkju....á
mánudegi!
en jamm....kom svo heim i skítakulda og rennblaut, og skipti um
föt, svo eg yrði bara ekki veik AFTUR! fór svo á FULLT að læra, þar
sem eg lærði ekkert allan daginn i skolanum, en var samt þar!
hmm
Þriðjudagur 31.okt: gat ENGAN veginn vaknað í morgun, það er
buið að vera undanfarið svona tveir púkar i hausnum minum, sem
segja sitthvorn hlutinn,...en það er buið að vera svoleiðis síðan
eg kom út vetrarfríi! Rosalegt! ... þannig eg ætlaði að mæta bara
seinna, því eg kann hvort eð er allt sem átti að fara í gegnum á
fyrirlestrinum, en ja svo hringdi ég i Söndru, sem er með mer í
bekk, til að tjekka hvað væri verið að gera, en þá mætti hun ekki
heldur, svo eg fór ekkert að koma of seint úr þvi! en er í staðinn
búin að vera ofurdugleg hérna heima, þvoði 3 þvottavélar, og þreyf
og setti inn fjögur ný myndaalbúm á hina síðuna!! ...bara eftir að
læra hmmm...er farin í það núna
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|